Stuttar æfingar

Æfingarnar í þessum flokki eiga það allar sameiginlegt að taka aðeins 10-15 mínútur og því fullkominn æfingaflokkur fyrir þá sem hafa lítinn tíma en vilja alls ekki sleppa æfingunni sinni. Tímaskortur er ekki afsökun og hérna er hægt að grípa í stuttar en árangursríkar æfingar!

Skotheld teygjuæfing

Skotheld teygjuæfing

10 mín
Stuttar æfingar

Skotheld teygjulota sem frábært er að gera eftir hvaða hreyfingu sem er og eins þá daga sem líkaminn er stirður og stífur og vantar smá liðkun.

Stutt en skotheld teygjuæfing!

Rassæfingar og plankalotur

Rassæfingar og plankalotur

15 mín
Stuttar æfingar

Frábær æfing sem styrkir rassvöðva, kvið og bak. Þessi æfing tekur enga stund en skilar okkur dúndurgóðum árangri. Ég elska æfingar sem ég get hent mér í heima þegar ég hef tíma. Mæli klárlega með að þið prófið!

Dúndur kviðæfingar

Dúndur kviðæfingar

14 mín
Stuttar æfingar

Dúndurgóð æfing fyrir kviðvöðva og mjóbak. Þið þurfið bara eina dýnu og 14 mínútur og þið verðið svakalega ánægð með ykkur á eftir. Líka frábært að taka þessa æfingu eftir góðan göngutúr eða góða þolþjálfun en hún er líka frábær bara ein og sér!

10 mínútna dúndurblanda

10 mínútna dúndurblanda

10 mín
Stuttar æfingar

10 mínútna dúndurblanda er fullkomin æfingar þegar við viljum ná góðri æfingu en höfum stuttan tíma!

1 þungt lóð

1 þungt lóð

14 mín
Stuttar æfingar

Hörkugóð styrktaræfing þar sem við notum 1 þungt lóð og vinnum æfingarnar rólega og tökum frekar fáar endurtekningar. Stutt en markviss æfing sem tekur á öllum líkamanum!

Styrktarmix með eigin líkama

Styrktarmix með eigin líkama

15 mín
Stuttar æfingar

Æðisleg æfing sem styrkir líkamann án allra áhalda en skilar okkur frábærum árangri þrátt fyrir að vera stutt og ykkur á eftir að líða dásamlega á eftir!

Barre, hendur og þol

Barre, hendur og þol

15 mín
Stuttar æfingar

Æðisleg æfing sem blandar saman "Barre" æfingum fyrir neðri hluta líkamans, tempovinnu fyrir hendur með léttum lóðum og stuttum þol lotum. Tíminn flýgur áfram á þessari fjölbreyttu og skemmtilegu æfingu sem kveikir vel í vöðvunum okkar!

Stutt teygjuæfing

Stutt teygjuæfing

12 mín
Stuttar æfingar

Þægilegar teygjur sem ykkur á eftir að líða svo vel eftir. Það er æðislegt að fara í góðan göngutúr áður en þið gerið teygjurnar en alls ekki nauðsynlegt. Ljúf æfing sem er ótrúlega mikilvæg fyrir okkur öll og tekur stutta stund!

Stutt súpersett neðri

Stutt súpersett neðri

15 mín
Stuttar æfingar

Stutt en markviss æfing sem styrkir neðri hluta líkamans. Við súpersettum tvær æfingar til skiptis, 12 endurtekningar hver æfing. Frábær æfing sem þið verðið að taka með mér!

Stutt súpersett efri

Stutt súpersett efri

13 mín
Stuttar æfingar

Stutt en markviss æfing sem styrkir efri hluta líkamans. Við súpersettum tvær æfingar til skiptis, 12 endurtekningar hver æfing. Æfing sem skilar okkur frábærum árangri á stuttum tíma!

Miniband bruni

Miniband bruni

13 mín
Stuttar æfingar

Hörkuskemmtileg og góð miniband æfing sem flæðir áfram án nokkurrar hvíldar. Við notum miniband æfingateygjuna í öllum æfingunum, styrkjum vöðvana og aukum vöðvaþolið okkar!

Kröftug miðja

Kröftug miðja

14 mín
Stuttar æfingar

Kröftugum kvið- og bakæfingum blandað saman á skemmtilegan og árangursríkan hátt!

1x súper Spartacus

1x súper Spartacus

15 mín
Stuttar æfingar

Stutt en hörkugóð æfing sem við keyrum í gegn sem 1x súper Spartacus lotu. 15 æfingar, hver æfing unnin í 45 sekúndur, hvílum í 15 sem á milli æfinga. Fullkomin æfing þegar þið hafið stuttan tíma en viljið taka vel á því!

Mini Spartacus

Mini Spartacus

11 mín
Stuttar æfingar

Dúndurgóð æfing sem tekur aðeins 10 mínútur. Hver æfing unnin í 45 sekúndur, pása í 15 sekúndur, 10 æfingar. Við blöndum saman þol- og styrktaræfingum og nýtum tímann alveg í botn!

Kjarnaflæði X

Kjarnaflæði X

13 mín
Stuttar æfingar

Dásamlegt kjarnaflæði þar sem við styrkjum kvið og bak í skemmtilegu flæði sem er ótrúlega fljótt að líða. Æfing sem ykkur á eftir að líða svo vel á eftir.

Mini 30/30

Mini 30/30

15 mín
Stuttar æfingar

Hörkugóð æfing sem eykur þol, styrk og myndar mikinn eftirbruna. Við þurfum eingöngu æfingadýnu og svo er bara að taka vel á því. 30 sek þol og 30 sek styrkur til skiptis.

Sterkir handleggir

Sterkir handleggir

12 mín
Stuttar æfingar

Stutt en hnitmiðuð æfing sem styrkir hendur og efri búk. Við notum eingöngu eigin líkamsþyngd og byggjum upp góðan bruna í vöðvunum með allskonar hreyfingum. Skemmtileg æfing sem þið eigið eftir að finna vel fyrir!

10 mínútna miniband æfing

10 mínútna miniband æfing

10 mín
Stuttar æfingar

10 mínútna miniband æfing sem tekur vel í. Ég elska þessa teygju því hún eykur álagið þvílíkt í æfingunum og þegar ég ferðast þá tek ég þessa teygju alltaf með mér. Stutt en frábær æfing sem þið verðið að prófa!

Tæbó & miniband

Tæbó & miniband

13 mín
Stuttar æfingar

Hörkuskemmtileg æfing sem einblínir á efri hluta líkamans. Við gerum frábærar æfingar með miniband teygju og keyrum púlsinn aðeins upp með kröftugum Tæbó lotum. Stutt en markviss æfing sem kveikir vel í efri hluta líkamans.

Kúlurass 30sek

Kúlurass 30sek

12 mín
Stuttar æfingar

Frábærar æfingar sem styrkja og móta rassvöðvana. Hver æfing unnin í 30 sekúndur, engin pása á milli æfinga. Markviss og góð æfing sem skilar frábærum árangri!

EMOM styrkur

EMOM styrkur

13 mín
Stuttar æfingar

Ótrúlega skemmtileg æfing sem heitir EMOM eða "every minute on the minute". Ég gef ykkur ákveðið verkefni og þið hafið eina mínútu til að klára, ef þið eruð 40 sekúndur að því, þá fáið þið 20 sekúndur í hvíld. 10 ólík verkefni á þessari stuttu og kröftugu æfingu sem þið verðið að prófa!

Kjarni með bolta

Kjarni með bolta

13 mín
Stuttar æfingar

Frábærar æfingar með jógabolta sem styrkja kvið- og bakvöðva. Boltinn styður sérstaklega vel við mjóbakið í sitjandi æfingunum og minnkar þannig álagið á mjóbakið. Æfingar sem taka einstaklega vel í á mjúkan hátt!

Mininband rassæfingar

Mininband rassæfingar

11 mín
Stuttar æfingar

Stutt og hnitmiðuð æfing með miniband æfingateygju sem eykur álagið í æfingunum. Hægt að gera allar æfingarnar án teygjunnar! Frábær æfing sem skilar góðum bruna í vöðvunum.

Dásamleg teygjuæfing

Dásamleg teygjuæfing

10 mín
Stuttar æfingar

Dásamleg teygjuæfing sem eykur liðleikann og losar um streitu. Við teygjum á öllum líkamanum á þessari stuttu en frábæru æfingu sem ykkur á eftir að líða ótrúlega vel á eftir. Góð æfing ein og sér eða eftir hvaða hreyfingu sem er.

Styrkur efri hluti

Styrkur efri hluti

12 mín
Stuttar æfingar

Styrkjandi æfingar fyrir efri hluta líkamans. Við notum eitt par af meðalþungum handlóðum og ef þið eigið þyngra lóð þá er frábært að nota það með en annars notið þið bara lóðaparið ykkar. Við vinnum með tvær æfingar saman og gerum hverja æfingu í 30 sekúndur, tvö sett. Markviss og góð æfing sem ég hvet ykkur til að prófa.

Balletbruni

Balletbruni

10 mín
Stuttar æfingar

Geggjuð æfing sem einblínir mikið á rass- og lærvöðva. Við notum stól í æfingunum og eru þær mjög dansaralegar og kallast "Barre" æfingar sem eru þekktar fyrir frábæran árangur. Æfing sem ég elska og þið verðið að prófa ef þið viljið finna fyrir góðum bruna í vöðvunum.

Styrkur allur líkaminn

Styrkur allur líkaminn

11 mín
Stuttar æfingar

Skemmtileg og góð æfing sem einblínir á að styrkja líkamann og notum við til þess 1 handlóð. Hver æfing er unnin í 30 sekúndur og við flæðum úr einni æfingu yfir í aðra. Stutt æfing sem skilar frábærum árangri.

Plankar

Plankar

10 mín
Stuttar æfingar

Hörkugóð æfing sem byggist á allskonar plankalotum sem styrkja vel kjarnavöðvana. Mikilvægt er að vinna algjörlega út frá sér, setja hné í gólf eða taka pásu ef maður þarf, huga vel að því að spenna kviðvöðva vel allan tímann til að styðja við bakið. Hnitmiðuð æfing sem tekur vel í og skilar frábærum árangri.

Ljúfar teygjur

Ljúfar teygjur

10 mín
Stuttar æfingar

Ljúf æfing sem teygir vel á vöðvunum og notum við til þess einn stól. Æfing sem liðkar og endurnærir kroppinn. Frábært er að taka þessa æfingu eftir góðan göngutúr eða aðra hreyfingu en einnig er hægt að taka hana eina og sér. Ég nota hana sjálf mest eftir útihlaup eða góða æfingu til að teygja á vöðvunum.

Góðar bakæfingar

Góðar bakæfingar

10 mín
Stuttar æfingar

Frábær æfing sem styrkir bakvöðvana en það er gríðarlega mikilvægt að huga vel að því að styrkja þá. Ljúfar og góðar gólfæfingar í bland við smá teygjur. Æfing sem gott er að taka eina og sér eða eftir aðra hreyfingu.

Mjaðmalyftur og kviðæfingar

Mjaðmalyftur og kviðæfingar

11 mín
Stuttar æfingar

Stutt og hnitmiðuð æfing sem einblínir á kjarnavöðvana okkar og þá sérstaklega rass- og kviðvöðva. Við vinnum eingöngu með góðar gólfæfingar á dýnu, mjaðmalyftur og kviðæfingar sem skila okkur frábærum árangri. Æfing sem þið verðið að prófa.

Sjálfsnudd (Foam Flex)

Sjálfsnudd (Foam Flex)

11 mín
Stuttar æfingar

Dásamlegt sjálfsnudd með nuddrúllu. Við rúllum yfir helstu vöðva líkamans, aukum blóðflæðið til vöðvanna og flýtum fyrir endurheimt. Æfing sem okkur líður dásamlega á eftir og frábær ein og sér eða eftir hvaða hreyfingu sem er.

Bruni Xpress

Bruni Xpress

10 mín
Stuttar æfingar

Hörkugóð og kröftug æfing sem keyrir púlsinn vel upp og myndar góðan bruna og eftirbruna á aðeins 10 mínútum. Hver æfing er unnin í 30 sekúndur, engin pása á milli. Fullkomin æfing ein og sér þegar þið viljið taka vel á í stuttan tíma eða á undan annarri stuttri æfingu sem einblínir á styrk eða endurheimt!

Kúlurass Xpress

Kúlurass Xpress

10 mín
Stuttar æfingar

Stutt og kröftug æfing sem einblínir á að styrkja og móta rassvöðvana okkar. Þegar maður hefur lítinn tíma fyrir æfingu þá er svo mikil snilld að geta tekið eina stutta sem skilar samt svo miklum árangri. Stundum tek ég þessa æfingu eina og sér en þegar ég hef meiri tíma þá bæti ég henni jafnvel við aðra æfingu sem mér finnst líka ótrúlega gott.

Ketilbjölluæfing

Ketilbjölluæfing

10 mín
Stuttar æfingar

Frábær ketilbjölluæfing sem styrkir vöðvana okkar og skilar okkur frábærum árangri þrátt fyrir að vera stutt. Hver æfing er unnin í 30 sekúndur og við flæðum úr einni æfingu yfir í aðra, engin hvíld á milli og tíminn því nýttur í botn.

Tónun efri hluti

Tónun efri hluti

10 mín
Stuttar æfingar

Dúndurgóð æfing sem styrkir og tónar efri hluta líkamans. Við notum dýnu og létt handlóð í æfingunum og nýtum tímann sérstaklega vel með skemmtilegri blöndu af æfingum með lóðum og gólfæfingum. Ég gríp oft í þessa æfingu t.d. eftir hlaup þegar mig langar að fá smá efri hluta á móti en einnig bara eina og sér þegar mig langar að henda inn stuttri en góðri æfingu.

Pilates kviður

Pilates kviður

10 mín
Stuttar æfingar

Æðislegar Pilates kviðæfingar sem styrkja og tóna líkamann okkar og tekur æfingin aðeins 10 mínútur. Verið sérstaklega meðvituð um að spenna kviðvöðvana vel í gegnum alla æfinguna. Þið fáið mjög mikið út úr þessari frábæru æfingu sem þið verðið að prófa.

Tæbó

Tæbó

11 mín
Stuttar æfingar

Kröftug og skemmtileg æfing sem byggist á tæbó eða stuttum boxlotum þar sem við virkjum kjarnann okkar vel, kýlum og keyrum vel áfram. Góð og öðruvísi leið til þess að auka þolið og tóna líkamann. Ef ykkur vantar smá útrás þá er þessi æfing klárlega málið.

Mjúk upphitun

Mjúk upphitun

10 mín
Stuttar æfingar

Mjúk og notaleg upphitun sem virkar á undan hvaða hreyfingu sem er. Góðar hreyfiteygjur og liðkanir sem hita okkur upp og koma blóðflæðinu vel í gang. Það er líka mjög sniðugt að taka þessa upphitun á undan góðri teygjuæfingu eða sjálfsnuddi á virkum hvíldardegi.

Rass- og læraæfingar

Rass- og læraæfingar

12 mín
Stuttar æfingar

Hörkugóð æfing sem einblínir á rass- og lærvöðva og notum við stól til að gera frábærar styrkjandi æfingar sem móta og tóna vöðvana. Stutt en hnitmiðuð æfing sem skilar frábærum árangri og er klárlega ein af mínum uppáhalds.

Mótun og tónun

Mótun og tónun

11 mín
Stuttar æfingar

Æðisleg æfing sem mótar og tónar líkamann. Við notum létt lóð og gerum frábærar æfingar fyrir allan líkamann með samsettum æfingum þar sem við vinnum með neðri og efri hluta líkamans saman sem skilar okkur hörkugóðum árangri.

Kröftug upphitun

Kröftug upphitun

10 mín
Stuttar æfingar

Kröftug upphitun sem frábært er að gera fyrir góða styrktaræfingu, bruna, mótun eða bara til að hita líkamann vel upp fyrir góða teygjulotu eða sjálfsnudd. 10 mínútur sem hita líkamann vel upp.

Styrkur neðri hluti

Styrkur neðri hluti

12 mín
Stuttar æfingar

Góðar styrkjandi æfingar fyrir neðri hluta líkamans. Við vinnum með 1 þungt handlóð (eða ketilbjöllu) og gerum hverja æfingu í 30 sekúndur og þaðan beint í næstu æfingu. Tíminn nýttur í botn og því fullkomin æfing þegar maður hefur knappan tíma en vill taka vel á því.

Kjarni 10x45

Kjarni 10x45

10 mín
Stuttar æfingar

Hörkugóð æfing sem einblínir á að styrkja kviðvöðvana. Við vinnum hverja æfingu í 45 sekúndur og fáum 15 sekúndur í hvíld á milli, 10 æfingar í heildina og tekur æfingin því enga stund en skilar okkur frábærum árangri.

Tónaðir handleggir

Tónaðir handleggir

11 mín
Stuttar æfingar

Stutt og hnitmiðuð æfing sem einblínir á styrkjandi æfingar fyrir hendur og efri búk. Við notum létt handlóð (eða 0.5 lítra flöskur) í æfingunum og vinnum alveg stöðugt frá upphafi til enda og nýtum tímann því í botn. Frábær æfing sem tónar handleggina.

Stutt Barre æfing

Stutt Barre æfing

11 mín
Stuttar æfingar

Stutt og kröftug "Barre" æfing þar sem við notum stól til að styðja okkur við og gerum frábærar æfingar fyrir rass- og lærvöðva sem móta og tóna líkamann. Barre æfingar eru svokallaðar dansara æfingar sem mynda ákveðinn bruna í vöðvunum og eru því sérstaklega árangursríkar.

Skráðu þig á póstlistann!