Fyrir: 1
Undirbúningur: 5 mínútur
Innihald:
1 1/2 dl tröllahafrar
2 dl möndlumjólk
1 msk chia fræ
1/2 dl lífrænt kókosmjöl
2 góðar msk grísk jógúrt (mér finnst með vanillu og kókos frá Örnu æði)
Smá skvetta Akasíu hunang
Hindber á toppinn
Aðferð:
Blandið öllu saman í glerkrukku og hrærið vel. Setjið smá Akasíu hunang ofan á og svo hindber (eða þau ber sem þið eigið til). Setjið krukkuna inn í ísskáp og látið standa yfir nótt. Einfaldara gerist það ekki!