Fyrir: 1
Undirbúningur: 5 mínútur
Innihald:
1 dl tröllahafrar
2 msk chiafræ
1 1/2 dl möndlumjólk
2 góðar msk grísk jógúrt (t.d. með vanillu og kókos)
Smá skvetta Akasíu hunang
Ber og jafnvel smá kókos á toppinn
Aðferð:
Blandið öllu saman í glerkrukku og hrærið vel. Setjið smá Akasíu hunang ofan á og svo þau ber sem þið eigið til ofan á. Gott að setja smá kókosmjöl eða flögur yfir. Setjið krukkuna inn í ísskáp og látið standa yfir nótt. Einfaldara gerist það ekki!